Hér hefur farið af stað keppni um hver á frábærasta vin/vinkonu! Ég ætla líka að taka þátt - og ég vinn (djók)..
Ég vil taka það fram samt að allir vinir mínir og vinkonur eiga hrós skilið fyrir að vera frábær en ég á einn vin sem er náttla one of a kind..
Mitt framtak:
Vinur minn er að vinna hjá Glytni
Vinur minn hjólar í vinnuna
Vinur minn býr á Tjarnarbraut, downtown Hfj. CITY
Vinur minn er 28 mínútur að hjóla í vinnuna
Vinur minn er ekki að vinna í sama bæjarfélagi og hann býr í
Vinur minn er að vinna hjá Glytni á Sæbraut
Vinur minn hjólar aftur heim
Vinur minn er frábær
Vinur minn heitir Þórður
Vinur minn er Gunnþórsson
Jess - toppit beibís - veit ekki með ykkur en ég tæki viku í þennan hjólatúr með pulsustoppum!
Einnig fær Kalla hrós fyrir að vera frábær - var ber að ofan með blautt bak niðrí fjöru í þágu listar!
Posted at 10:12 pm by thelman
Permalink
Klukkan er 20:34 á föstudagskvöldi og ef þú lest þetta núna og hefur ekkert að gera áttu að mæta í kjólapartý í gettóið - ef þú kemur snemma áttu von á að fá hvítvínsglas í stíl við kjólinn þinn! ekki seinna vænna....
blííííng
thelma og anna katrín
Posted at 10:33 pm by thelman
Permalink
Gleðilega páska þó þeir séu búnir!
páskarnir hjá mér voru bara ægilega næs - Nonninn minn átti afmæli á föstudaginn. Ég var mætt fersk á húninn klukkan átta AM heim til hans, beint úr vinnunni - með rjúkandi gulrótarköku og fullt af pökkum, línuskautum og öðru góðu stöffi ;) sváfum til hádegis og fórum svo í brunch til familyunnar hans og skelltum okkur svo í bláa lónið í sólinni. Um kvöldið kom svo aðal partýliðið í kjúklingasalat og nýbakað brauð - tókum sing star og kíktum svo í bæinn. Kofinn stóð að sjálfsögðu uppúr þar sem allir uppáhaldsvinirnir mínir voru samankomir - nema auðvitað einn þar sem AK var í sveitinni! Hitti svo Höllu Stínu á Kaffibarnum sem var líka alveg einstaklega frábært! Fórum á bretti einn daginn en þar sem heilinn á mér er ennþá í páskafríi er mér alveg lífsins ómögulegt að muna hvaða dagur þar var...
Nú ligg ég bara í veikindum og volæði uppí rúmi og vorkenni sjálfri mér - læknirinn sagði að þetta væri einhver vírus sem lýsir sér alveg eins og streptokokkar nema hiti og höfuðverkur fylgir með - og hor í ótakmörkuðu mæli!
Hlakka til að fá þig á eftir Anna Katrín - let´s celebrate ;)
og takk fyrir síðast á föstudaginn allir saman..
Posted at 02:53 pm by thelman
Permalink
Three days of craziness...
jamm nú ertu hissa Thelma! að ég skuli bara blogga...
ástæðan er sú að ég hef einfaldlega ekki orku í að gera neitt annað... Sit hérna alveg hökkuð með Gígju enda hafa seinustu dagar verið ansi spes og átakanlegir...
Þetta byrjaði allt á miðvikudaginn þegar að ég samþykkti að fara með Margréti vinkonu í Sweat sem að ég hélt að væri svona spa meðferð - hvítar flísar og mjúk risahandklæði... Margrét sagði bara að þetta væri sex klst detox meðferð... Ég var yfir mig spennt enda ábyggilega kominn tími til að hressa upp á veslings lifrina sem hefur mátt þola margt...
En nei nei þetta var allt gufuruglað, "spa" eigendurnir voru tveir miðaldra hommar sem voru nú bara bóndalegri en pabbi minn þótt þeir eigi engar beljur. Og heimili þeirra var ekki með hvítum flísum en hins vegar mjög litríkt, glimmerað og alsett diskókúlum... Maður var svo allur greindur sundur og saman og ég fékk meisja staðfestingu á því að minn innri litur sé GULL , og eins fræddi maðurinn mig um það að minn tilgangur hér á jörð væri að vera góð við aðra en hins vegar mætti ég bíða lengi eftir þakklæti
og blabla... svo fékk ég sjúklega ljótt speisuð græn sólgleraugu og þurfti að hafa þau uppi í klst til að taka inn þann lit sem mig vantaði mest innan í mig (???) allt úr gulli þar víst... En hópurinn sem var um 14 manns var 50% skeiter gæjar sem einnig þurftu að bera svona TÖFF sólgleraugu og áttu mun meira bágt en ég með þann tískuglæp... Múhahaha SVO gott stöff! Síðan var haldið diskótek... oh SVO steikt... fullt að fólki að dansa við einhverja gamla diskótónlist í stofu hjá tveim hommum kl. 7.30 á miðkvöldi...
Síðan var strippað í bikini (eða speedo skýlu...) og allir út í freezing kuldann í tjaldið þar sem að detoxið átti að eiga sér stað. Inn í þetta litla tjald sem er eins og skjaldbaka í laginu og það lágt að það er ekki í boði að standa uppréttur sátum við svo öll 14 plús the gays og inn var hrúgað 20 GLÓANDI steinum - ekki hægt að segja annað en að ég hafi óttast um líf mitt og limi um stund... Síðan var tjaldinu lokað og við lágum þarna og kyrjuðum og báðum bænir og God knows what í FOKK miklum hita!!!! Það lak af manni svitinn - ekki hægt að lýsi því hvað maður svitnar mikið. Og þarna var maður í 3 klst... Sumir farnir að vola um að þeir væru að deyja og falla í yfirlið og sth... En mér leið bara nokkuð vel enda haft það orð á mér að mér líði best í gróðurhúsaloftslagi - erfitt fyrir fólk að koma í heimsókn til mín og ikva...
Það lifðu samt allir af og þetta er BARA snilld! húðin adrei verið betri og maður ikva svo mega ferskur svo ekki sé minnst á átökin sem að lifrin þolir eftir þetta...
... fór á þriggja daga tryllt fyllirí og gekk það bara fínt... ótrúleg afrek verið unnin seinustu daga... skíðaferð, sushiát, photoshoot sem að var steiktara en allt sem við Thelma höfum gert saman ;), bling djamm, hélt risa fyrirlestur í Hí, endlaust strákarugl, ofsótt af tattooverurum, dönum og skeiter strákum... hitti vini þína á djamminu Thelma en EKKI þig
tékkaðu á myndunum sem ég var að henda inn - hitti loksins Þórunni 
En já allir í SWEAT í Elliðarárdalnum!!!
ást og friður - AK
Posted at 01:58 am by annan
Permalink
Til hamingju með daginn elsku þórður - bara 2 ár þangað til ég næ þér og verð jafn gömul og þú!!
Posted at 06:50 pm by thelman
Permalink
Stuttsaga eftir Írisi Ásmundardóttir
Fiskarnir þrír
Einu sinni voru fiskarnir að synda og þá hittu þeir ömmu sína, hún var að fara að kaupa í matinn, svona söl og líka eitthvað að drekka handa sér. Fiskarnir hétu Thelma sem var miðstór, Margrét sem var stæðst og Íris sem var minnst. Þannig að einn dag fóru fiskarnir út að leita að mjög miklu söli og óvart fóru þeir út í djúpið. Þar sáu þeir risa stóran hákarl. Þegar hákarlinn kom að þeim syntu þeir á harðasundi heim. Þegar þeir komu heim þá fór mamman að elda, hún Magga. Þá byrjuðu þeir að borða sölina. Svo datt einn fiskurinn á rassinn og gretti sig í framan. Svo prumpaði fiskurinn.. blurulurubluru.. (loftbóluhljóð). Svo lagðist hann í rúmið sitt eða eins og maður segir þá lögðust þeir í rúmið sitt. Þannig endar sagan.

Höf. Íris Ásmundardóttir, 6 ára og einni tönn færri.
Posted at 07:11 pm by thelman
Permalink
Mér finnst fyndið...
- að vera á báðum áttum um hvort maður eigi að fara til læknis og koma svo út í gifsi með blóðþynningu í æð...
- að þurfa endalaust að skipta um rúðu í stofuglugganum því hún springur jafnóðum og hún er sett í...
- að vera að keyra út úr bílskúrnum og reka sig í fjarstýringuna í leiðinni og loka á þakið á bílnum...
- að fara í partý á vitlausri hæð og vera að afsaka sig fyrir eldri konunni sem býr þar og detta bakkandi á meðan niður stigann og stórslasa sig á fætinum...
Allt þetta skemmtilega grín átti sér stað síðastliðna viku og kom fyrir vini mína og stórfjölskyldu og eins og sjá má er ég einstaklega mikið fyrir ófarir annarra!
ps. er yfir mig ástfangin og hamingjusöm þessa dagana og ætla aldrei að hætta því!
THELMA GÉ.
Posted at 01:59 pm by thelman
Permalink
í fréttum er þetta helst...
ríkir á landinu - hitinn hefur farið langt niður fyrir frostmark og mér er farið að líða eins og ég sé í Danmörku. Og það er ekki einu sinni opið í Bláfjöllum!
Ég skilaði skattaskýrslunni núna rétt í þessu - talið er að ég fái miklar fúlgur til baka..
Hundurinn gengur sínum vanalega berserksgangi - var að kyngja skó (þó ekki mínum heldur mömmu - verður gaman að sjá viðbrögðin þegar hún kemur úr vinnunni..) með tilheyrandi hljóðum úr maganum.
Íbúðin hjá Nonna er loksins farin að taka á sig mynd (hann er ss. að gera upp íbúð á óðinsgötu - 101) - búist er við hressilegu partýi á þeim dýrðardegi 14. apríl - sjáum til ;)
Anna Katrín er að fara til New York í maí - þú mátt búast við lööööngum innkaupalista þegar þar að kemur..
Costa skvísurnar ætla loksins að hittast á Horninu í kvöld
Mig vantar sumarvinnu - ef einhver veit um einhverja má endilega hafa samband - hún þarf að vera í miðbæ reykjavíkur!
Mig vantar peninga - ég á enga
Skólaárið mitt mun enda með stórri sýningu - öllum boðið - nánast auglýst síðar.
þetta var mitt framlag í bloggi - ekki merkilegt en þó nokkrar línur..
ég er ekki að vinna á föstudagskvöldið/nóttina - I see u baby, shaking that ass..
Posted at 01:30 pm by thelman
Permalink
ég er greinilega ekki eini íslendingurinn sem finnst kaupmannahöfn skemmtileg borg - ónei ónei... ég vissi nú að það byggju "nokkrir" íslendingar þar en ekki ég bjóst kannski ekki alveg við að hitta fleiri íslendinga en dani!! boooring.. þá var mér nú bara hugsað til new york þar sem það var bara hending ef maður hitti íslendinga. og þá voru það í flestum tilfellum túristar sem voru EKKI til í að bjóða manni góðan daginn þegar ég var sem glöðust að hitta þá bara vegna þess að þeir voru íslendingar því að finna íslending í new york er eins og að finna mýflugu í helvíti eða öfugt!!!
danmörk var annars bara köld svo það fór 40% af ferðinni í annað hvort bíl eða upphituð moll.. lékum okkur að því að villast á bílnum downtown og æfa mig í að lesa kort. væri annars til í að finna upp kort sem virkar eins og áttaviti og norður vísar alltaf í sömu átt.. var neflinlega orðin ágætlega lúin í höndunum á að snúa kortinu svo við tölum ekki um pirringinn ef ég náði ekki að snúa nógu hratt. ég var eins og fínasta gps tæki fyrir nonna.. "hægri hér.. yfir 3 gatnamót og þar til vinstri.. ó fokk einstefna.. jæja heilan hring í kringum torgið og út næst.. vinstri... nei nei nei ekki hér..." fórum út að borða í svíþjóð og reykspóluðum yfir litlu hafmeyjuna. brenndum gat á debetin og vísað og hlógum á okkur gat!
Nokkrar myndir hér fyrir neðan, restin og góða stöffið á filmum..
MYNDIR FRÁ DANMÖRKU
Thelma Gunnarsdóttir
__________________________________________
undirrituð Thelma Gunnarsdóttir
Posted at 06:50 pm by thelman
Permalink
Thelma er komin heim!!!! and I´m happy as a pup!!!!!!!!!
Luv you dears...
AK
og ú Nonnzter!!!
Posted at 01:17 am by thelman
Permalink